Þú er gestur nr.
free hit counter

:: Unglingaflokkur og Meistarflokkur ::

Allt sem ad thu vildir ekki vita.
:: Velkomin á síðu okkar HK stelpna :: ad forvitnast Hlustaðu á HK-lagið | Vertu í bandi ::
sex appeal


[::..Myndir..::]
:: Forkeppnin
:: Brunch hjá Grétu
:: millijólaognýársdjamm
[::..Um okkur..::]
:: Prófílarnir
:: Gullkorn
:: Leikmenn
:: Gestabókin okkar
[::..Handboltastelpur..::]
:: Gréta og Bína
:: Aldís
:: Líney
:: Selma
:: Lilja
:: Guðný
[::..Handboltavefir..::]
:: 4.fl kvk HK
:: HK
:: HSÍ
:: Hanboltaslúðrið
:: Sigrún
:: Víkings stelpurnar
:: Binnamenn

:: þriðjudagur, september 30, 2003 ::

Breyting á æfingatíma á morgun. Æfingin verður í okkar ástkæra Digranesi kl: 1710. Ekki af verri endanum.
:: Gréta þriðjudagur, september 30, 2003 [+] ::
...
:: mánudagur, september 29, 2003 ::
Í prófílnum þessa vikuna er kjúllin hún Áróra.
:: Gréta mánudagur, september 29, 2003 [+] ::
...
Jæja við erum nú ekki alveg að standa okkur í stykkinu. Tölvan sko bilaði sko ehe.... nei nei engar lame excuses. Annars er nú lítið á döfinni hjá okkur þessa dagana nema það að við vorum að fá styrkingarprógram á lau og endilega þær sem mættu ekki að drífa sig í að fá blað hjá Díönu.
:: Gréta mánudagur, september 29, 2003 [+] ::
...
:: fimmtudagur, september 25, 2003 ::
Vildi bara minna á að það er ekki æfing í kvöld þar sem að það er leikur hjá meistaraflokki gegn Haukum, og hvet nú bara allar til að mæta. En þær sem mættu í morgun kl. 6.30 vita það náttúrulega.
:: Gréta fimmtudagur, september 25, 2003 [+] ::
...
:: miðvikudagur, september 24, 2003 ::
Lið 2 lék tvö leiki í röð á sunnudeginum þann fyrri kl. 12.45 við Gróttu 1 sem lauk 21-10 en svo við Fram 2 og lauk þeim leik með 7 marka sigri Fram. Ekkert svo sem til að vera ósáttur við þar enda eru þetta með bestu liðunum í unglingaflokki og eflaust tvö af fjórum lðum sem munu vera að keppast um titla í vetur. Sérstaklega var gaman að sjá hvað stelpurnar úr 4. flokki voru óhræddar og báru enga virðingu fyrir þremur árum og auka 20 kg.

Hér getið þið séð úrslit úr riðlum unglingaflokks hjá liði 1 og liði 2 en niðurröðun leikja ætti að fara koma bráðum.
:: Gréta miðvikudagur, september 24, 2003 [+] ::
...
jæja þá ætla ég að vera með smá umfjöllun um leiki okkar við Fram og FH á sunnudaginn !!!
fyrri leikurinn var á móti Fram og við byrjuðum ekkert alllt of vel og var hægt að halda að við værum hræddar við þær því að við vorum ekki undir af því að þær voru að spila svo miklu betur en við, við voum bara ekki að spila nógu vel og var mikið um sendinga feila og ar hreinlkega bara verið að senda boltan eitthvert í einhverju panikki og við höfðum ekki efni á því og misstu boltan minnsta kosti 3 til mótherja út af svona feil og minnir mig að staðan hafi verið 8-3 í hæalleik Fram í vil en svo eins og venjulega þá tókum við okkur til og spiluðum smá kafla eins og hetjur (eftir að það var talað við okkur í hálffleik) en það er vani hjá okkur að taka þennana gó'a kafla of seint því að það er ekki nóg að spila bara í einhverjar 20-25 mín af 50-60 mín !!!! en við náðum að vinna munin niður í það ég held 2 mörk en svo hættum við að spila svona vel og endaði leikurinn 16-11 Fram í vil !!!

seinni leikurinn var svo á móti fimleikafélaginu og spiluðum við mun betur í þeim leik og vorum með yfir höndina mest allan leikinn en minnir smat að FH hafi haft yfir höndina fyrstu mínutur leiksins!!! margir leikmenn voru að spila mjög vel og sýna í hvað sé býr, gaman var að sjá gullmolann okkar hana Selmu á miðjunni og hún stóði sig bara ágætlega þar, svo sýndi Tinna Rögg okkur loksins að hún getur alveg farið í gegn en hefði verið betra að henni hefði langað að sýna okkur það fyrr en við treystum baa á að okkur verið sýnt þetta það sem eftir er vetrar !!! en lokatölur leiksins voru 22-19 okkur í vil og jafn vle þó að við vissum fyrir þennan leika að við yrðum í 2.deild í vetur var gott að fá einn sigur svona til að ýta aðeins á sjálftstraustið hjá okkur !!!

En staðan er þá þannig hjá okkur að bæði lið verða í 2.deild og við gerum bara best úr því vinnum okkar leiki og sýnum það sem að við vitum eða það er að segja hvað í okkur býr !!! og hlökkum til að mæta HK í Digranesunu og vonum að það verði gaman að sjá okkur samherjana mætast inni á vellinum :)
:: Bína miðvikudagur, september 24, 2003 [+] ::
...
:: þriðjudagur, september 23, 2003 ::
er alveg að fara að setja inn umfjöllun um Fram og Fh leikinn en vegna anna hefur það dregist !!!! og svo er teljarinn okkar alltaf að rísa og væri gaman ef að eitthvað að gestunum myndu skrifa í gestabókina okkar og kommenta eitthvað á síðuna !!!!
:: Bína þriðjudagur, september 23, 2003 [+] ::
...
:: mánudagur, september 22, 2003 ::
Þá er komið að henni Aldísi að leyfa okkur að kynnast sér nánar.
:: Gréta mánudagur, september 22, 2003 [+] ::
...
:: laugardagur, september 20, 2003 ::
Þá eru fyrstu leikir búnir á forkeppninni. Í gærkvöldi lék lið eitt við lið KA. Fyrir leikinn var mikil hugur í mannskapnum en það virtist ekki skila sér út í leikinn. KA skoraði fyrstu fjögur mörk leiksins. Það leið á leikinn og ekkert virstust okkar stelpur ætla að saxa forkotið sem KA hafði en tók Díana þá á það ráð að taka leiklé. Það hristi nú eitthvað upp í liðinu, en dugði skammt og fyrri hálfleik lauk 9-5 og það var allt annað en skemmtilegur hanbolti sem boðið var upp á. Síðari hálfleikur byrjaði eins og sá fyrri og ekkert virtist geta stöðvað KA í að sigra slakt lið HK. Í stöðunni 12-5 þegar 10 mínútúr voru liðnar án þess að HK hafði gert eitt mark þá breytti Díana í 5-1 vörn í stað 6-0 sem liðið hafði spilað allan leikinn. Allt í einu var sem það hefði verið sparkað í rassin á okkur og við fórum að spila handbolta og náðum að minnka muninn í tvö mörk. Nær komumst við þó ekki og lokastöðu leiksins urðu svo 14-11 KA í vil. Það er vonandi að við höfum meiri trú á leik okkar á sunnudag og hefnum ófaranna frá fyrsta leik.
Aldís mun svo setja inn frétt af leikjum liðs 2 fljótlega.
:: Gréta laugardagur, september 20, 2003 [+] ::
...
:: fimmtudagur, september 18, 2003 ::
núna er bara rúmur sólahringur í fyrsta leik okkar og þar sem að það er heimaleikur þá hvet ég sem flest til að koma og horfa á okkur og hvetja til dáða enn við eigum að spila klukkan 20:00 eins og sést hérna fyrir neðan !!!! og ég minni stelpurnar allar að mæta í kvöld klukkan 21:00 enda seinasta æfing fyrir leik og mun ég vera með ykkur í anda á hliðarlínunni :)
:: Bína fimmtudagur, september 18, 2003 [+] ::
...
:: miðvikudagur, september 17, 2003 ::
Það styttist óðfluga og nú er um tveir og hálfur sólarhringur í 1. leik unglingaflokks þennan veturinn. En rétt er að minna á leikmannagleði sem haldin verður heima hjá Esther að leik loknum. Þar mun verða boðið upp á ekta íslenskan mat og volga spenamjólk beint úr beljunni með. Svo vinsamlega takið allt kvöldið frá.
:: Gréta miðvikudagur, september 17, 2003 [+] ::
...
:: laugardagur, september 13, 2003 ::
Prófíllinn hennar Lilju Daggar var að detta inn. Er nú samt ekki alveg sátt, því að myndin birtist ekki. En vonandi ráðum við fram úr því bráðum.
:: Gréta laugardagur, september 13, 2003 [+] ::
...
:: föstudagur, september 12, 2003 ::
Jæja þá eru myndirnar af okkur komnar inn, sem er mjög gott og kíkið bara á leikmenn ef þið viljið sjá þær.
:: Gréta föstudagur, september 12, 2003 [+] ::
...
Það kemur fljótlega inn umfjöllun um æfingleikinn við Fram, svo bíðið alveg rólegar.
:: Gréta föstudagur, september 12, 2003 [+] ::
...
:: þriðjudagur, september 09, 2003 ::
bara svona fyrir þá sem að voru ekki á æfingu í dag að þá er æfingaleikur á morgun klukkan 21:00 en mæting klukkan 20:45 upp í Fram heimili !!!!og verum nú stundvísar stelpur !!!
:: Bína þriðjudagur, september 09, 2003 [+] ::
...
:: sunnudagur, september 07, 2003 ::
Á laugardaginn spiluðum við æfingaleik á móti KA-Þór og var þetta í fyrsta skipti sem að við spiluðm saman síðan að ´87 árgangurinn gekk upp og mun þetta vera í fyrsta skipti sem að við erum með fullskipaðan unglingaflokk!!! Leikurinn gekk svona misvel og er ekki hægt að segja að við höfum verið að spila eins og við getum best, en samt áttu margir leikmenn nokkra góða kafla!!! Aðal feillinn okkar var vörnin en við spiluðum 6/0 vörn og við vorum einfaldlega að gera það of flatt og maður hefur ekki efni á því þegar við erum með svona lágvaxið lið (ekki illa meint við erum bara sneggri í staðinn ; ) ) og við verðum að taka okkur aðeins á ef að við ætlum að eiga séns í vetur en við eigum samt ekki að vera að hafa of miklar áhyggjur því að það býr mikið í þessu liði ! við verðum bara að leggja harðar af okkur að kalla það fram í okkur og sýna öllum það, því stelpur það nægir ekki bara að við vitum það við verðum að sýna það !!! en leikurinn fór 21-12 og flest mörk átti hún Herdís og þar á eftir var Líney. Munum bara Batnandi manni er best að lifa!!!
Bína (var sko bara logguð inn á Grétu nafni)
:: Gréta sunnudagur, september 07, 2003 [+] ::
...
Við erum búnar að setja inn fyrsta prófílinn og það var hún Hjördís Perla sem fékk að vera fyrst til að sýna okkur hina hliðina.
:: Gréta sunnudagur, september 07, 2003 [+] ::
...
:: miðvikudagur, september 03, 2003 ::
bara að láta að það er engin æfing á morgun fimmtudag en Díana er að fara að keppa !!!! en kvet alla í staðinn að koma upp á Ásvelli klukkan 8 og kvetja kallana okkar i meistar meistar leiknum !!!! svo muna eftir æfinga leiknum á laugardaginn klukkan 9:30 :) sjáumst hressa !!! helst strax annað kvöld !!!!
:: Bína miðvikudagur, september 03, 2003 [+] ::
...
:: þriðjudagur, september 02, 2003 ::
vildi bara vekja athygli á því ef að einhver les þetta en þá er æfinginn klukkan 16:45 úti í hinu heitt elskaða Kársnesi og vona til að sjá flestar þrátt fyrir staðsetningu :)
:: Bína þriðjudagur, september 02, 2003 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?