Þú er gestur nr.
free hit counter

:: Unglingaflokkur og Meistarflokkur ::

Allt sem ad thu vildir ekki vita.
:: Velkomin á síðu okkar HK stelpna :: ad forvitnast Hlustaðu á HK-lagið | Vertu í bandi ::
sex appeal


[::..Myndir..::]
:: Forkeppnin
:: Brunch hjá Grétu
:: millijólaognýársdjamm
[::..Um okkur..::]
:: Prófílarnir
:: Gullkorn
:: Leikmenn
:: Gestabókin okkar
[::..Handboltastelpur..::]
:: Gréta og Bína
:: Aldís
:: Líney
:: Selma
:: Lilja
:: Guðný
[::..Handboltavefir..::]
:: 4.fl kvk HK
:: HK
:: HSÍ
:: Hanboltaslúðrið
:: Sigrún
:: Víkings stelpurnar
:: Binnamenn

:: föstudagur, október 31, 2003 ::

Við óskum Díönu Guðjónsdóttur innilega til hamingju með þrítugsafmælið í dag. Vonum að þú eigir góðan afmælisdag og alla daga eftir það:)
:: Gréta föstudagur, október 31, 2003 [+] ::
...
Ekki sóttum við sigur í Garðabæinn í gær. Stjarnan skoraði 32 mörk gegn 19 mörkum HK. Liðið var dauft allan tíman og helst eins og við værum hræddar við boltann. Það er ljóst að það hellingur sem þarf að laga og er þar hugarfarið efst á blaði.
:: Gréta föstudagur, október 31, 2003 [+] ::
...
:: mánudagur, október 27, 2003 ::
Svo vil ég vekja athygli á því að það er peysu mátun eftir æfingu á morgun eða sem sagt um 18:25 uppi í Digranesi og er mikilvægt að sem flestar mæta því því fyrr sem að við vitum hvaða stærðir við þurfum að panta því fyrr fáum við peysurnar okkar !!!!!!!
:: Bína mánudagur, október 27, 2003 [+] ::
...
jæja það er búið að vera hálfgert hallæri hérna hjá okkur HK stúlkum í blogg málum en ég ætla nú að reyna að bæta úr því !!!! fyrst er til efni til að minnast á að bæði liðin okkar spiluðu á fimmtudaginn í seinustu viku og gekk það svona upp og ofan en HK2 tapaði fyrir val (ég man ekki hverja lokatölurnar urðu) en HK1 vann Gróttu 2 naumlega 25-24 en spilið var nú ekkert til fyrirmyndar hjá stúlkunum, en stigin 2 höfðust !!!! vonandi heldur áfram HK 1 að vinna sér inn stig og HK2 að komast á réttan kjöl og sína hvað í þeim býr því að þær geta gert miklu betur en að þær eru að gera !!!!

:: Bína mánudagur, október 27, 2003 [+] ::
...
:: fimmtudagur, október 23, 2003 ::
Unglingaflokkur HK óskar Björgvini Gústafsyni innilega til hamingju með að hafa verið valinn í A-landsliðið. Nánar um þetta á HK síðunni.
:: Gréta fimmtudagur, október 23, 2003 [+] ::
...
jæja þá er óðum að styttast í leikina okkar og ég vil bara minna á þá en HK2 spilar á móti Val uppi í Digranesi klukkan 19:40 og HK1 spilar á móti Gróttu2 klukkan 21:00 og við viljum hvetja sem flesta til að koma og hvetja okkur til dáða :) á seinasta leik uppi í Digranesi var það til fyrirmyndar hve margir komu að horfa á og við vonum að enn fleiri komi að horfa á bæði liðin í kvöld !!!!

ÁFRAM HK
:: Bína fimmtudagur, október 23, 2003 [+] ::
...
:: miðvikudagur, október 22, 2003 ::
Hún Sigrún var nú svo indæl að leiðrétta þetta hjá mér en svo við komum okku rða efninu ....eru staðráðnar í að gráta ekki björn bónda heldur safna liði og leita hefnda..... sem hljómar nottla mun betur.
:: Gréta miðvikudagur, október 22, 2003 [+] ::
...
Eins og hún Aldís var búin að koma á framfæri þá er hreint út sagt handboltaveisla í Digranesinu á fimmtudagskvöld. HK2 ríða á vaðið kl. 19.40 gegn val og eru staðráðnar í að (eins og hún Sigrún mundi segja) gráta ekki björn bónda heldur rífa ig upp og safna liði (held að ég sé ekki alveg með þennan frasa á hreinu). Í kjölfarið koma síðan stúlkur í HK1 í leik gegn Gróttu2. Allir bara að fjölmenna í HK-höllina og styðja okkur.


:: Gréta miðvikudagur, október 22, 2003 [+] ::
...
:: mánudagur, október 20, 2003 ::
Jæja þá er nú kominn inn nýr prófíll .... hmmm, loksins, hmmm.... anyway það er hún Esther sem er í góðum gír
:: Gréta mánudagur, október 20, 2003 [+] ::
...
:: föstudagur, október 10, 2003 ::
Gaman er að segja frá því að HK1 vann FH í gærkvöldi 27-21 var mikil gleði hjá okkur eftir leikinn enda verðskulduð 2 stig og góð byrjun á nýjum vetri !!! nánari umfjöllun, markaskorara og annað, er hægt að sjá hér.
:: Bína föstudagur, október 10, 2003 [+] ::
...
:: miðvikudagur, október 08, 2003 ::
Á morgunn er fyrsti leikur á Íslandmótinu hjá unglingaflokki liði 1. Leikurinn verður háður í Digranesi kl: 2100 og mun þar etjast HK og FH. Allir hvattir til að mæta og styðja við bakið á okkur.
:: Gréta miðvikudagur, október 08, 2003 [+] ::
...
:: sunnudagur, október 05, 2003 ::
Við tókum púlsin á Díönu þjálfara svona til að athuga hvernig henni litist á veturinn framundann og forvitnast um hennar hagi. Svo þetta hafði hún að segja fyrir fyrsta Íslandsmótið með unglingaflokk kvenna HK.

Nafn Díana Guðjónsdóttir
Gælunafnekkert
Aldur29 bráðum 30 ára
Hæð166
Maki og hjúskaparstaðabý ein

Uppáhalds –
- matur
kjúklingur eða grillmatur
- drykkurdiet kók eða vatn
- sjónvarpsefniíþróttir eða spennu þættir
- tónlistfer eftir skapi

Afhverju tókstu það að þér að þjálfa okkur og hvernig lýst þér á veturinn framundan?krefjandi verkefni með hóp sem vill gera vel og leggja mikið á sig. Lýst vel á veturinn en það er mikil vinna framundan.

Hver í flokknum er-
- Ljóskan
veit það ekki alveg er ekki búin að kynnast öllum nægilega vel en til að segja eitthvað Hjördís eða Halldóra
- SkæruliðinnRannveig Albína
- hrakfallabálkurinnHildur Mist

Skemmtileg saga úr handboltanumþær eru nokkrar og Hafdís systir mín er í þeim flestum. En eigum við ekki að segja þegar ég var að spila með FH á móti Fram í Framheimilinu og ég komst inn í sendingu og fór í hraðaupphlaup og skoraði. En pabbi var að horfa á leikinn og hafði aldrei séð mig hlaupa eins hratt á ævinni því Gurrý systir var á eftir mér og ég var ekkert smá hrædd.

Með hvaða liði mundir þú aldrei spila?Veit það ekki líkar yfirleitt vel við öll lið
Fallegasta handboltakonan:eigum við ekki að segja mamma og systur mínar spái ekki mikið í þetta
Fallegasti handboltamaðurinn:þeir eru nokkrir flottir sem maður hefur séð um ævina
En fallegastur í meistarafl. HKenginn sérstakur en þjálfarinn er flottastur
Efnilegasta handboltafólkið:það eru nokkrir er mjög hrifinn af mörgum leikmönnum vill ekki nefna neinn sérstakan
Vandræðalegasta atvik á æfingu/ í leikhef ekki lent í neinu stórvægilegu

Mottó: að lifa lífinu lifandi

Að lokum: hlakka til starfsins í vetur og vonandi verður þetta skemmtilegur vetur.
með kveðju
Díana G

:: Gréta sunnudagur, október 05, 2003 [+] ::
...
:: miðvikudagur, október 01, 2003 ::
Mig langaði að benda ykkur á sem hafið voðalegar áhyggjur af þessu með myndirnar inn á leikmannasíðunni að nú er HK að opna nýja síðu þar sem við fáum eitthvað pláss. Leikmannalistinn mun þá eingöngu verða þar en bara linkur af þessari síðu þangað inn á. Þess vegna mun leikmannasíðan í núverandi formi ekki verða uppfærð.
:: Gréta miðvikudagur, október 01, 2003 [+] ::
...
Þá er komið inn valdar myndir af helginni 19-21 september þegar forkeppni unglingaflokks fór fram. Vil bara endilega benda á að kommenta bara á myndirnar ef það er eitthvað með því að ýta á comment on this gallery hjá myndunum.
:: Gréta miðvikudagur, október 01, 2003 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?